Fréttir af heimferð og flugi :
Þegar við vorum á leiðinni heim vorum við auðvitað (eins sönnum dömum sæmir ;p) með allt of mikinn farangur!
til að byrja með vorum við með 10kg hvor umfram það sem mátti taka með úti á Spáni (en það eru 26 kg) en svo hentum við nokkrum blöðum og bókum, kremum og skóm og þá vorum við á endanum með aðeins minna og sluppum í gegn án þess að borga :D það var s.s. í fyrra skiptið sem við tékkuðum okkur inn. það var ungur maður sem var svona góður við okkur (þó að við værum ennþá með 12 kg í yfirvigt af þeim farangri sem hann vigtaði) og sendum við honum kærar þakkir með hugarorkunni ;) hehe...
á næsta flugvelli tóku á móti okkur frekar leiðinlegar konur sem voru sko alveg ákveðnar í að láta okkur borga eitthvað fyrir allt þetta dót sem við vorum með með okkur!! en við endurröðuðum dótinu okkar aðeins og settum bara meira í handfarangurinn okkar þangað til við vorum komnar með tæplega 3kg í yfirvigt þannig að hún gat ekki verið svo leiðinleg að láta okkur borga fyrir það, aumingja litlu námsmennina sem voru alveg að missa af fluginu sínu :´( :S *sniffsniff* neituðum líka að leyfa henni að vigta handfarangurinn okkar þar sem hann var nú orðinn frekar þungur :s
en sem betur fer endaði þetta allt vel og sluppum við við að borga þann tæpa 17000 kall sem þetta fólk ætlaði fyrst að láta okkur borga! hjúkket! manni munar nú um minna ;)
en annars erum við bara ótrúlega glaðar að vera komnar heim áfallalaust og brúnkakan, ristaða brauðið og kókómjólkin smakkaðist bara mjög vel þarna um nóttina :D hehe....

gæti það verið meira íslenskt ?? :p
en Helga.... skiluðum við ekki örugglega tveimur settum af lyklum af herberginu okkar ??
ég var nefnilega að finna lyklasett af herberginu okkar áðan í hvítu töskunni minni :s
Madrid...
Jebbs..vid erum i Madrid nuna..fluginu til Alicante var seinkad svo eins gott ad vid naum fluginu til Islands..:S 7,9,13...
en allavega hugsidi fallegatil okkar svo vid komumst nu alla leid og getum hitt alla a morgun:)
Sjaumst vonandi;) a morgun...
adios:P
Laufey sem langar i brunkoku og mjolk og Helga sem langar i rista braud og kokomjolk:D
How to save a life...
http://radioblogclub.com/open/140751/the_fray/The%20Fray%20-%20How%20To%20Save%20A%20Life
En þá er það bara síðasta helgin á Spáni.. fórum út að borða í gær með Lauru og Camillu og kíktum svo á djammið... fengum enn og aftur frítt inn á Granada 10 með hommanum.. Síðasta kvöldið hennar Lauru og svo förum við og þá er bara ein eftir úr hópnum góða sem var alltaf saman.. ein orðaði það þannig að fjölskyldan væri öll að fara..:) Eigum eftir að sakna krakkana miklu meira en skólans og Granada..
Ætlum aftur á djammið í kvöld.. og erum búnar að safna upp mikilli orku í dag.. :P
Svo byrjum við að pakka á morgun..vonandi verdur okkur bara ekki hent útaf residencinu..:)
megum víst bara vera fram á laugardag en við ætlum að láta reyna á það;)
Kisskiss og knús í bala...
Under my umbrella, ella, ella, eh, eh, eh...
Já..loksins höfðum við not fyrir regnhlíf..:) hehe.. á föstudaginn síðasta var sko GRENJANDI rigning.. stanslausar þrumur meðan við vorum í skólanum en við létum það ekki á okkur fá og fórum eftir skóla í Science Park...jebb hljómar ömurlega en ótrúlegt en satt, þá var það mjög gamanJ reyndar var ekki nærrum allur garðurinn opin en okkur fannst rosa gaman að horfa á allar köngulærnar, froskana og slöngurnar..:P
Svo var farið á tjúttið á föstudag eins og vanalega..:) en við fengum frítt inn á diskótekið núna afþví við vorum með einum homma í för sem vinnur fyrir nokkra bari hérna þannig hann reddaði okkur öllum frítt inn.. fínt að hafa hann með..hehe, fengum líka um daginn allur hópurinn frí skot og fría drykki og svona..;)
En svo var vaknað aðeins fyrr en venjulega um helgar hjá okkur á laugardaginn og drifið sig niður á Bus Estacion þar sem við ætluðum að taka rútu til Malaga.. ætluðum að fara með 13:30 rútunni en hún var full svo við þurftum að bíða til 14:30 eftir næstu rútu.. en það var allt í lagi..fengum okkur bara Mcflurry á meðan;) svo þegar við komum til Malaga þurftum við að taka lest til Costa Del Sol þar sem við fórum í Tivolí.. þannig eftir allar þessar samgöngur höfðum við síðan bara 1 og hálfan tíma í tivolíinu..en það slapp svosem alvegJ fórum bara tvær með Anne, sem er dönsk stelpa sem er í skólanum.. Helgu tókst að draga Laufey í 60 metra háan fallturn og Laufey fór oft úr sætinu og aftur í það en gaurinn sem var að vinna endaði á að loka hliðinu svo hún komst ekkert burt:P
Svo var bara rólegt kebab kvöld eftir langan dag;)
Í dag fórum við í göngutúr og fórum aðeins í catedraliið aftur þar sem myndavélin var batteríslaus síðast..haha.. aular!!
Svo er það bara síðasta vikan.. erum nú farnar að iða í tánum af því að komast á flugvöllinn en samt verður líka leiðinlegt að kveðja krakkana sem við erum búnar að kynnast best hérna.. Laufey er nú lika svo gestrisin að hún er búin að bjóða öllum til Íslands og gistingu og allt saman.. Auður mamma og Kolla mamma..þið verðið að vera tilbúnar með gestarúm og svona;)
Svo eigum við miða í Alhambra á miðvikudaginn en það er svaka flott höll og er ein þekktasta bygging á Spáni.. Var byggð fyrir langalöngu eða þegar Arabar réðu yfir Spáni.. eða e-ð..hehe!!
Svo ætlum við að vera duglegar í vikunni að skoða og fara út og svona.. Skoðunarferðir og tapas á hverjum degi;)
En þetta er orðið kannski aðeins of langt..:) erum líka búnar að láta fullt af nýjum myndum
Þangað til næst..eða þangað til við komum heim..reynum kannski að blogga einu sinni áðurJ
Kisskiss frá Spáni..Helga og Laufey
hola!
Hola! Qué tal?
:p jæja, sólin kíkti á okkur í dag svo við kíktum í heimsókn í sundlaugina eftir skóla J eftir það fór Helga í fótbolta með fullt af krökkum og Laufey tók til sín megin í herberginu ;) hehe, já kraftaverkin gerast :p
Í kvöld er svo afmælisveisla og djamm og stuð :D
Um helgina er planað: skoðunartúrar, svefn, sólbað og ströndin.
Æði pæði ha!!
Adiós!!
Jájá myndir koma bráðum ;) við erum ekki hættar því :p
búhúúú ;,(
rigning og þrumur núna!!! :( :(
engin brúnka!
við verðum albínóar þegar við komum heim :(
(ekki stríða)
Sunnudagsblogginn
Jæja..þá er einn kakkalakkinn búin að heimsækja okkur síðan síðast :S Þeir eru farnir að gera sig of heimakæra þessir félagar!! Þá er tíminn okkar hérna hálfnaður.. þrjár vikur þangað til við komum á landið kalda..
En við erum búnar að vera svolítið menningarlegar síðan síðast.. Fórum á leikritið sem við töluðum um í síðasta bloggi á þriðjudaginn og það var ágætt. Skildum nú ekkert mikið en það sat einhver Spanjóli að nafni Sesar við hliðina á okkur sem var góður í að útskýra fyrir okkur J svo við náðum kannski meginpartinum af leikritinu sem heitir á spænsku Las preciosas rediculas..
Svo var það bara skóli og veikindi L Það eru næstum allir hérna á Residencinu búnir að vera e-ð veikir og við gátum ekki sleppt því.. en erum orðnar ágætar núna enda frekar afslöppuð helgi..
Fórum reyndar í fótbolta á föstudaginn (eða Helga.. Laufey var klappstýra ;) ) og svo á laugardaginn fórum við í ferð sem var á vegum skólans og skoðuðum margt og mikið.. þar á meðal fórum við að skoða svona dropahella sem eru ótrúlega flottir nema þessir voru orðnir frekar nýtískulegir þar sem það er búið að byggja svo mikið í kringum þá.. Svo fórum við á ströndina sem var ekkert smá þægilegt :D leigðum okkur hjólabát og hjóluðum aðeins í sjónum eða þangað til Helga var að verða sjóveik..hahaha..
Svo bara legið í öldunum og í sandinum og slappað af..
Það var leiðsögumaður með okkur sem gerði voða lítið annað en að láta okkur labba og labba og svo skjóta á okkur íslendingana útaf leiknum.. sagði að hann myndi pottþétt enda 5-0 fyrir Spáni en hann hafði nú rangt fyrir sérJ
Þannig það var bara rólegt kvöld í gærkvöld hjá okkur.. Helga horfði á leikinn og svo horfðum við á Grey´s Anatomy langt fram eftir nóttu þar sem við erum orðnar gjörsamlega húkkt á því :P
En haldiði áfram að vera svona dugleg að kommenta..alltaf svo gaman að vita hverjir lesa og fá kveðjur úr rigningunniJ
más o menos..
Helgin var voða svipuð síðustu helgi.. djamm á föstudaginn nema bara skemmtilegra ef e-ð er en þessum föstudagsdjömmum fylgir reyndar oftast að það þarf að kveðja einhvern :( David er farin og þá er orðið nokkuð hljóðlátt í húsinu
Svo var það sundlaugin í gær og legið þar heldur lengi enda erum við báðar svona örlítið bleikleitar í dag :P
Erum bara rólegar í kvöld og ætlum að fara snemma að sofa.. keyptum svo miða á leikrit í dag sem við förum á annað kvöld..spurning hversu mikið við eigum eftir að skilja en hva.. þetta verður þá bara fyndin reynsla :D lærum kannski nokkur ný orð..
þangað til næst.. og dugleg að kvitta:)
Senoriturnar a.k.a. the gangsters;)
OG HEY.. Það eru komnar nýjar myndir
Bugs life 2..
Já..pöddulífið er sko vægast sagt ekki búið .. það eru maurar allst staðarL vorum að smyrja okkur brauð um daginn og voru ekki bara nokkrir vinir okkar skríðandi um borðið.. OJJ.. og svo á matarborðinu frammi eru líka alltaf maurar útum allt.. aðeins of ógo..
En við vorum aldeilis danspíur í gær.. byrjuðum á að fara í Culture class sem er aukatími sem er boðinn uppá í skólanum alla virka daga.. höfum aldrei farið áður enda ekkert áhugavert búið að vera..bara e-ð um sögu ólífuolíunnar og fleira..en í gær var boðið uppá Flamenco.. Okkur var reyndar ekki kennt mikið og hefði kannski verið skemmtilegra ef við hefðum lært meira..en Helgu fannst þetta mjög leiðinlegt en Laufey ágætt!! Svo um kvöldið fórum við út með krökkunum á klúbb sem heitir Habana og lærðum þar Salsa.. og það var sko gaman J og ætlum sko pottó aftur..
Á morgun er svo fullt af krökkum að hætta svo það á að kíkja út í kvöld og svona hálfgert kveðjudjamm.. svo var maturinn líka vondur áðan þannig við ætlum að fá okkur Tapas..
Ætlum svo að reyna að láta inn fleiri myndir og svona.. þetta forrit er bara stundum svo slow þannig við höfum ekki alltaf þolinmæði í að bíðaJ
Adiós
Helga y Laufey
P.s. endilega kommenta svo við sjáum hverjir eru að lesa hjá okkur ;)